Bloggfærslur mánaðarins, október 2007
22.10.2007 | 14:13
Iceland Airwaves '07
Besta helgi ársins kemur aldrei aftur. Förum yfir það sem undirritaður sá. Með í för voru Lárus Þorvaldssson, Trausti Þorgeirsson, Hildur Þórarinsdóttir og Árni Long + aðrir hressir krakkar.
Föstudagur : Samúel J. Samúelsson Big Band (ICE), Trentemøller In Concert (DK), múm (ICE) og of Montreal (US)
Laugardagur : Hjaltalín (ICE), Mugison (ICE)(urðum frá að hverfa frá Iðnó vegna biðraðar á Seabear), Hafdís Huld(ICE), Annuals (US), Bloc Party (UK), Radio LXMBRG (SE) og President Bongo (ICE - GusGus DJs)
Sunnudagur : The Magic Numbers (UK) og Cut Off Your Hands (NZ)
Takk fyrir mig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.10.2007 | 13:22
Nokkrir punktar
Spaugstofan notaði brandarann minn Þ.e.a.s. þennan hér. Þeir sem ekki sáu þáttinn geta séð hann hér. Allt í drasli brandarinn er þarna í blálokin af þættinum.
____________________________________________
Hins vegar verð ég að minnast á eiturhresst framlag Barða Jóhannssonar í þættinum Laugardagslögin síðasta laugardag. Fyrir þá sem að misstu af því.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.10.2007 | 23:57
Eflum meðvitund, minnkun meðvitundarleysi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.10.2007 | 12:14
Gamli góði Villi
"Ég hélt að ég væri búinn að leita alls staðar, en gleymdi að kíkja í ryksugupokann!" sagði gamli góði Villi þegar að hann fann bréfið góða og gleymda
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2007 | 14:13
Menningarþátturinn Konfekt
Loksins, loksins. Menn geta tekið gleði sína á ný.
Nú eru 36 atriði úr menningarþættinum Konfekt komin á youtube.
Konfekt. Menningarlegur sjóvarpsþáttur með listrænum leikþáttum. Var sýndur á Skjá Einum ca 2001-2002.
Fyrir þá sem að vita ekkert hvar á að byrja þá hefur Lárus sett upp best of lista.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.10.2007 | 13:22
Irek
Irek gamli vinnufélaginn minn frá Rf var í fréttunum um daginn. Sjá hér.
Irek er góður maður og fórum við saman í mína fyrstu og síðustu sjóferð árið 2005. En þetta var einmitt fyrsta sjóferð hans einnig. Hvorugur okkar varð sjóveikur, enda hörkukarlar við Irek.
Irek ræðir um vandamál erlendra sérfræðinga sem að setjast hér að en fá ekki störf við hæfi. Vandamál sem að viðreisnarstjórnin og/eða nýja félagshyggjustjórnin í borginni mætti berjast fyrir að yrði unnin bót á hér í borg.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2007 | 08:50
Mesta okur í heimi
Þetta er það það sem að ég bloggaði um daginn.
Skoðum frétt hjá mogga í morgun, hér.
Látum tölurnar tala sínu máli, OKUR !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.10.2007 | 17:39
Pálmi Gestsson
Alltaf þegar maður les svona fréttir, þá finnst manni að mann vanti greind.
En ég er þrjóskur og dey aldrei ráðalaus. Þess vegna teiknar maður ættartréð upp.
T.d. Pálmi Gestsson. Hann ákveður að teikna upp sitt ættartré. Við sjáum mynd.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.10.2007 | 17:33
GGE, REI og OR
Sveitarfélög í útrás. Reykjavík ætlar að leggja undir sig Kína.
Í reykherbergjum er ákveðið að steypa saman tveimur orkuútrásarfyrirtækjum í eitt, REI Reykjavík Energy Invest og GGE Geysir Green Energy. Stærsti eigandinn í orkuútrásarfyrirtækinu er Orkuveita Reykjavíkur. Aðrir stórir eigendur eru m.a. FL Group, Atorka Group, Glitnir og Goldman Sachs + Ólafur Jóhann Sigurðsson og Bjarni Ármannsson.
Haukur Leósson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, sem kynnti samruna félaganna segir að lagðar hafi verið til hliðar 130 milljónir sem starfsmönnum Orkuveitunnar og REI bjóðist að kaupa í REI á genginu 1,3. (Hver ákvað að gengið væri 1,3? Forsendur? Heimild?) Hlutur hvers og eins getur verið frá 100 og upp í 300 þúsund að nafnverði.
Auk þessa fá 10 aðrir lykilstarfsmenn í REI að kaupa fyrir 10 milljónir hver.
Áætlað er að skrá félagið á opinberan markað eftir 2 ár og verður fróðlegt að fylgjast með þessu fyrirtæki fram að þeim tíma. Hvaða gengi ætli almenningi bjóðist að kaupa á eftir 2 ár?
To be continued....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2007 | 09:35
Loftun
Þetta er gríðarlega mikilvægt málefni : Loftun
Einnig er hér eitt atriði. Menn úr orkugeiranum hafa gert vísindalegar rannsóknir á orkunotkun heimilanna. Sú rannsókn hefur leitt í ljós að hitastýring heimilanna er oft á tíðum engin. Ofnarnir eru á sömu stillingu allt árið. Óháð því hvort að það er -10 gráður úti í febrúar eða +20 gráður í júlí. 30 stiga sveifla dugar ekki á mörg heimili. Þau láta engan bilbug á sig finna.
Hins vegar er hægt að lækka hitareikninginn um 7 % sé hiti lækkaður um eina gráðu. Kjörhiti innan dyra er 20 gráður en algengur húshiti er 23-25 gráður. Það má því lækka hitareikninginn um 21 % allt upp í 35 %.
Eflum meðvitund - Minnkum meðvitundarleysi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggvinir
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar