Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Leiðrétting

Það er ekki hrun á mörkuðum. Hófleg lækkun. Ástæðan er hér.

Heimskreppa

Það var ekki fögur sýn þegar ég leit á m5.is í morgun. Hrun á íslenska markaðinum. Nú er bara að spyrja hvað veldur.

Varla getur það verið þessi "sub-prime" lán í Bandaríkjunum, því komið hefur fram að íslensk fjármálafyrirtæki eru með beinum eða óbeinum hætti með stöðu í áhættusömum húsnæðislánum upp á 30 milljarða eða einungis eitt prósent af markaðsvirði OMX12.

Kannski maður sendi e-mail á Friðbjörn Orra og spyrji hann hvað veldur þessu. 

  

 


Ekki fara

Ekki skilja mig einan eftir.

Útrás ríkisfyrirtækja og volgur bjór

Stefnuleysi til frambúðar í borgarmálum höfuðborgarinnar  ?

ALDREI FLEIRI Á LAUGARDALLSVELLI - 40 ÞÚSUND MANNS

Ég rölti þarna í gærkvöldi. Á meðan ég valtaði þarna fram og aftur þá fullyrti Páll Óskar að 40 þúsund manns væru á vellinum. Það voru max 15-20 þúsund þarna. Það má færa rök fyrir því og það hafa aðrir gert og því nenni ég því ekki.

Sjá hér og hér.  

 Hvernig er annars manntal tekið á svona viðburðum ? Einhver...


Tvöfaldur meistari - Trausti Stefánsson

Eins og alþjóð veit þá er ungur maður tvöfaldur meistari. Í vikunni birtist viðtal við þennan meistara þar sem hann rekur bikarmeistaraafrek sín bæði í körfubolta og frjálsum íþróttum.

Nema hvað.

Nú er svo komið að því að við hinir í bikarmeistaraliði ÍR verðum að finna okkur einhverja íþrótt til þess að jafna eða toppa þennan árangur. Í hvaða íþrótt get ég orðið bikarmeistari í og fengið viðtal við mig í Morgunblaðinu ?

Elvar Guðmundsson telur sig eiga góða möguleika á að vinna bikartitil í bogfimi. Elvar er nákvæm skytta og er bjartsýnn á framhaldið.

Hvaða aðrar íþróttagreinar koma til greina ? 

 

  

 


Titringur - Kæruleysisleg útlánastefna í USA

USA bankar lánar nánast hverjum sem er lán til húsnæðiskaupa á lágum vöxtum.

Hækkandi vextir í USA verða til þess að þessir lántakendur geta ekki greitt skuldir sínar. Á sama tíma fer húsnæðisverð niður á við þ.a. bankarnir hafa tapað á lánveitingunum.

 Bankar um allan heim hafa keypt skuldirnar og eiga því á hættu á að tapa á þessu. Enginn veit nákvæmlega hvaða bankar þetta eru og það veldur titringi meðal fjárfesta. Þeir taka því fjármuni sína af reikningum þar – skortur á lánsfé. Skortur á fjármagni = hækkandi vextir. Menn selja hlutabréf í bönkum og tengdum fyrirtækjum og kaupa ríkisskuldabréf.  

Hlutabréf lækka – Lánsfé dýrara – Hærri vextir – Verri afkoma fyrirtækja – Hefur áhrif á lánveitingar til almennings – Leiðir til minni eyðslu og neyslu - Samdráttur


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband