Uppskrift dagsins

Einn bragðsterkur

  • 1 piparostur
  • 1 mexico-ostur
  • ca 100 rjómaostur
  • 4-5 dl matreiðslurjómi
  • 1 box af sveppum (250 gr)
  • 100 gr pepperoni
  • 1 beikonbréf
  • 2 dósir sýrður rjómi
  • 3/4 franskbrauð, skorpuskorið og tætt niður

1. Ostarnir og rjóminn eru settir í pott og bræddir, sýrða rjómanum síðan hrært saman við.
2. Rífið brauðið niður og setjið í eldfast mót.
3. Sveppir og beikon steikt á pönnu og raðað ofan á brauðið.
4. Pepperoni stráð þar ofan á og ostablöndunni hellt yfir.
5. Bakað í ofni við 200°c í u.þ.b. 20 mínútur.

ATH: Undirritaður ber takmarkaða ábyrgð á þessari uppskrift og/eða því tjóni sem að manneskjur geta bakað sér við gerð hans.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband